17. september 2013
Strákarnir Sólon og Þytur hafa staðið sig vel í sumar bæði á keppnisbrautinni sem og í að þjóna hryssum, enn hátt í 70 hryssur hafa heimsótt okkur á Skáney þetta árið með mjög góðri fyljun. Hér eru þeir ásamt þjálfurum sínum á fjórðungsmótinu sem haldið var í sumar á Kaldármelum. Margt hefur gerst síðast liðið ár og munu koma fréttir af því helsta hér á síðuna innan skamms.
Ný reiðhöll var reist síðastliðinn vetur og hesthús innréttað í gömlu höllina og er það ein af ástæðum fyir því hversu dugleg við höfum verið að að uppfæra heimasíðuna okkar það eru víst bara 24 tíma í sólarhring þótt oft væri allavega not fyrir fleyri tíma. Höllin varð nothæf um miðjan Apríl í vor enn hesthúsið tekið í notkun í Febrúar. Við komum með fleyri myndir og útlistanir á framkvæmdunum síðar.
Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir af húsi og starfseminni sem er í fullum gangi þessa dagana.
 |
 |
Frumtamningar eru á fullu þessar vikurnar erum með tvö hringgerði í notkun svo það er góður gangur í því. |
Erum með tvær duglegar stelpur að aðstoða okkur þær Anne-Cathrine og Elise |
 |
 |
Hringteymt af mikilli einbeitingu!! |
Hér er aðal hjálpar hvolpurinn á bænum |
 |
 |
vinna við hendi er stór þáttur í ferlinu |
Svo af stað og ná góðri framhugsun!!! |
 |
 |
sveigja og kyssa ístöð má ekki gleyma enda eitt af grunnatriðum fyrir framhaldið |
Hér eru Randi og Ópera Óms f. Stóra-ási að ræða málin |
 |
 |
Elise og Ægir Skjannason stilla sig af fyrir fréttaritarann. |
Það er sko notalegt að hafa góða inniaðstöðu þessa dagana í þessari blessuðu rigningu sem aldrei að hættir |